Þessi hlutu umhverfisviðurkenningar 2025
						Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar árið 2025 voru afhentar á setningarhátíð Vökudaga í dag. Markmið viðurkenninganna er að vinna með umhverfisvitund og skapa umhyggju fyrir bænum og umhverfi hans og vekja þannig athygli á atriðum sem skipta uppbyggingu og framtíð bæjarins máli.
Fjölmargar tilnefningar bárust frá bæjarbúum, en í ár voru veittar viðurkenningar fyrir:
- Tré ársins – þar sem horft er til útlits og menningarlegs gildis einstakra trjáa nú og til frambúðar.
 - Hvatningarverðlaun – veitt þeim sem staðið hafa að endurbótum húss eða lóðar og vel hefur tekist til.
 - Samfélagsverðlaun - veitt hópum eða einstaklingum sem hafa unnið óeigingjarnt starf í þágu umhverfisins.
 
Það var ilmreynir við Jörundarholt 160 sem fékk viðurkenninguna tré ársins, en húsið er í eigu Ingibjargar Indriðadóttur og Ragnars Fjalars Þrastarsonar. Í umsögn skipulags- og umhverfisráðs segir að ilmreynirinn sé “fallegt og stæðilegt tré í skemmtilegu umhverfi sem setur svip á götumyndina nú og til frambúðar.”
Hvatningarverðlaun ársins hlutu þau Gunnhildur Vilhjálmsdóttir og Björgvin Heiðarr Björgvinsson eigendur Laugarbrautar 23 fyrir “fágaða vinnu við endurbætur og stækkun á eldra húsi í gömlu hverfi”.
Samfélagsverðlaunin hlaut svo Magnús B. Karlsson fyrir “einstakt framtak hans við hreinsun í friðlandi Blautóss og Innstavogsness”, en Magnús hefur unnið þrekvirki við hreinsun á þessum svæðum.
Við óskum þessum góða hópi innilega til hamingju með verðskuldaðar viðurkenningar.
  

Fréttasafn
- 2025
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
 - 2024
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2023
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2022
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2021
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2020
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2019
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2018
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2017
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2016
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2015
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 
					
 
 



