Fara í efni  

Hvernig viltu að Ægisbraut líti út í framtíðinni?

Miðvikudaginn 20. maí, var haldinn fjölmennur kynningarfundur í sal Grundaskóla um framtíðarsýn fyrir Ægisbraut. Á fundinum voru kynntar forsendur og markmið verkefnisins sem snýr að endurskoðun skipulags svæðisins og komandi hugmyndavinnu um uppbyggingu íbúðarbyggðar, leikskóla og opinna svæða við Ægisbraut.

Fundargestir fengu kynningu þriggja hönnunarstofa, Basalt, Hjark og Tark, þar sem lagðar voru fram frumtillögur að framtíðarsýn fyrir svæðið. Mikil áhersla verður lögð á að skapa heildstæða og aðlaðandi byggð sem tekur mið af náttúru, aðgengi, sjóvörnum, tengingu við núverandi byggð og góðu umhverfi fyrir börn og fjölskyldur.

Kynningargögn og glærur frá fundinum eru nú aðgengileg öllum hér fyrir neðan. Íbúar eru eindregið hvattir til að skoða þær.

Íbúar eru jafnframt hvattir til að taka þátt í áframhaldandi samtali um þróun svæðisins með því að svara könnun um framtíðarsýn fyrir Ægisbraut. Með könnuninni gefst bæjarbúum tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum sínum, áherslum og væntingum um hvernig svæðið eigi að þróast til framtíðar.

Við hvetjum öll áhugasöm til að taka þátt og hafa áhrif á mótun þessa mikilvæga svæðis á Akranesi.

Taka þátt í íbúakönnun

Basalt - kynning

Hjark - kynning

Hjark - myndband

 Tark - kynning


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu