Fara í efni  

Flokkstjórar Vinnuskóla

Flokkstjórar Vinnuskóla Akraneskaupstaðar

Auglýst er eftir flokkstjórum í Vinnuskólann á Akranesi, sumarið 2024.

Flokkstjórar stýra hópum unglinga 14-17 ára við ýmis garðyrkjustörf og fræðslu, auk annarra verkefna og þjónustu sem Vinnuskólinn veitir.

Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi. Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að umhirðu og snyrtingu byggðalagsins.

Markmið vinnuskólans er að gefa unglingum kost á sumarstörfum í umhverfi sem einkennist af fræðslu, kennslu, þjálfun og tómstundum. Lögð er áhersla á samskiptareglur, ástundun og vinnusemi og virðingu gagnvart vinnu, samstarfsfólki og bæjarbúum. Einnig eru grundvallaratriði í vinnubrögðum kynnt og notkun verkfæra.  Sótt er um á alfred.is 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn garðyrkjustörf í bæjarlandinu.
  • Leiðsegja og vinna með unglingum.
  • Skipuleggja verkaskiptingu og framkvæmd verkefna innan hóps.
  • Efla liðsheild og vinnuvirðingu meðal nemenda vinnuskólans.
  • Annast ýmis skapandi verkefni og fræðslu á vegum vinnuskólans.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Umsækjandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
  • Reynsla af störfum með unglingum er kostur.
  • Gott er að hafa mikla samskiptahæfni og skipulagsfærni.
  • Umsækjandi þarf að vera góð fyrirmynd og samviskusamur.
  • Áhugi á umhverfismálum þarf að vera til staðar.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélag Akraness eða Sameyki.

Nánari upplýsingar gefur Jón Arnar Sverrisson, garðyrkjustjóri. S: 8983490


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00