Fara í efni  

Bilun á klórskammtara í Jaðarsbakkalaug

Þann 7.mars varð bilun í klórbúnaði sem tengist nuddpottinum á Jaðarsbökkum. Virðist klórdæla hafa dælt út of miklum klór, sem valdið getur meðal annars ertingu á húð og skemmdum á sundfatnaði. Búið er að loka pottinum og unnið er að bilunarleit. Þeir sem kenna sér meins er bent á að hafa samband við lækni.

 

Vegna skemmda á sundfatnaði er óskað eftir því að haft verði samband á netfangið danielsg@akranes.is til að fá hann bættan.

 

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið en unnið er stöðugt að eftirliti og viðbrögðum við óeðlilegum breytingum sem kunna að verða á búnaði með öryggi gesta að leiðarljósi.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00