Bæjarlistamaður Akraness 2025 er Orri Harðarson.
Bæjarlistamaður Akraness árið 2025 er tónlistarmaðurinn og rithöfundurinn Orri Harðarson.
Orri fæddist hér á Akranesi 12. desember 1972 og ólst hér upp að mestu. Foreldrar hans eru Hörður Ó. Helgason, fv. skólameistari og knattspyrnuþjálfari, og Sigrún Sigurðardóttir, fv. læknaritari. Orri lést á sjúkrahúsinu á Akranesi þann 7. júní síðastliðinn. Þegar Menningar og safnanefnd Akraneskaupstaðar ákvað að leggja til við bæjarstjórn að hann yrði útnefndur, var vitað að hann væri alvarlega veikur. Orri féll því miður frá áður en bæjarstjórn náði að staðfesta útnefningu hans, en það var að sjálfsögðu gert, enda Orri einstaklega vel að þessari viðurkenningu kominn.
Orri fékk snemma mikinn áhuga á tónlist og það var Einar okkar Skúlason sem kenndi kornungum Orra fyrstu tökin á gítarinn og kenndi honum að spila lög eftir Dylan, Bubba og Megas. Margir af kynslóð Orra muna eftir að hafa séð hann spila einmitt á 17. júní 1985 fyrir fullu íþróttahúsinu á Vesturgötu, þegar hann var bara 12 ára. Og það var enginn byrjendabragur á þeim flutningi.
Orri var í fjölmörgum hljómsveitum hér á Akranesi á unglingsárunum og lykilmaður í öflugu tónlistarlífi sem var í miklum blóma á þessum árum. Meðal hljómsveita má nefna Óþekkt andlit, Bróðir Darwins og fleiri. Þrjár af hljómsveitum Orra tóku þátt í Músíktilraunum og komust Óþekkt andlit og Bróðir Darwins í úrslit Músíktilrauna. Orri var í enn fleiri hljómsveitum sem tóku þátt í blómlegri Tónlistarkeppni Fjölbrautaskólans á Akranesi.
Hljómsveitin Óþekkt andlit, sem Orri var í þegar hann var 14-15 ára, tók Akraborgina oft til Reykjavíkur og spilaði þar með Sykurmolunum og öðrum merkisberum íslenska tónlistarvorsins sem fæddi af sér íslensku tónlistarútrásina um og upp úr 1990.
Orri sendi frá sér fyrstu sólóplötuna, Drög að heimkomu árið 1993 og hlaut fyrir hana nafnbótina Bjartasta vonin á íslensku tónlistarverðlaununum það árið. Næsta plata, Stóri draumurinn kom 1995, þriðja platan Tár árið 2002, Trú 2005 og fimmta og síðasta platan Albúm, kom 2010. Allar vöktu þessar plötur athygli og aðdáun tónlistaráhugafólks.
Orri bjó í nokkur ár í Danmörku og rak þar hljóðver ásamt dönskum félaga sínum og stýrði þar m.a. upptökum á plötum Önnu Halldórsdóttur, tónlistarkonu frá Akranesi, og hljómsveitarinnar Ummhmm þar sem innanborðs voru Skagamenn á hljóðfærum.
Hann starfaði um árabil sem blaðamaður á Morgunblaðinu og skrifaði þá aðallega um tónlist.
Orri var líka mjög flinkur upptökustjóri; tók upp og stjórnaði upptökum á ótrúlegum fjölda platna og laga með fólki eins og KK, Pálma Gunnarssyni, Skagasveitinni Abbababb, Halla Melló fyrrum bæjarlistamanni og fyrrnefndri Skagakonu Önnu Halldórsdóttur svo einhver dæmi séu nefnd. Orri tók ekki bara upp, heldur spilaði hann líka á flest hljóðfæri og útsetti. Hann var alvöru upptökuSTJÓRI, kunnur fyrir mikið næmi og einstaka natni við sína vinnu.
Orri samdi lög fyrir leikhús, hann átti amk. einu sinni lag sem komst í Söngvakeppnina og svo framvegis.
Orri var ekki bara tónlistarmaður heldur skrifaði hann líka bækur. Árið 2008 sendi hann frá sér sína fyrstu bók, Alkasamfélagið, og hlaut fyrir hana Fræðslu- og vísindaviðurkenningu Siðmenntar. Árið 2014 kom svo fyrsta skáldsaga hans, Stundarfró, og tveimur árum síðar kom út skáldsagan Endurfundir, þar sem sögusviðið er Akranes fyrir rúmum 30 árum. Hann þýddi líka fjölmargar bækur, bæði skáldsögur og viðtalsbækur.
Orri var útnefndur bæjarlistamaður Akureyrar árið 2017, en hann bjó í um áratug á Akureyri og þar fæddust dætur hans tvær, Karólína og Birgitta.
Orri Harðarson er eitt mesta tónskáld sem Akranes hefur alið af sér og enginn annar Skagamaður hefur gefið út jafn margar plötur undir eigin nafni og Orri. Þar að auki eru ekki svo margir Íslendingar sem hafa gefið út fleiri sólóplötur en Orri – það eru bara Bubbi, KK, Björk og nokkrir aðrir.
Það eru ekki svo mörg lög sem eru alveg skýr og klár Akranes-lög, en Orri er höfundur einhvers mesta Akraness-lagsins – Drög að heimkomu – sem er titillag fyrstu plötunnar hans. Það lag fjallar um Skagastrákinn sem fluttur er að heiman og hugsar heim, dreymir um fjallið þó ekki sé það hátt, um hafið spegilslétt og blátt og um fólkið þó heldur sé það fátt.
Orri var fluttur heim, bjó síðustu árin í rauðu blokkinni á Garðabrautinni þar sem hann vann að listinni.
Akranes var Orra mikilvægur kjarni í hans persónulega lífi og endurminningum og um leið mikilvægur innblástur bæði við tón- og ritsmíðar. Hann var alhliða listamaður eins og þeir gerast bestir, samdi lög og texta, skrifaði bækur og þýddi, stjórnaði upptökum, útsetti, söng og spilaði. En hann var líka góður drengur, næmur, traustur og mikils metinn af bæði vinum sínum og aðdáendum.
Fyrir hönd bæjarstjórnar og Akurnesinga allra færum við Orra Harðarsyni okkar bestu þakkir fyrir hans magnaða ævistarf.
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember