Fara í efni  

Almyrkvinn á Akranesi - hagnýtar upplýsingar

Almyrkvi á sólu verður sýnilegur frá Akranesi á miðvikudag í næstu viku, þann 12. ágúst 2026. Almyrkvinn mun standa í um 1 mínútu og 7 sekúndur hér á Akranesi. Deildarmyrkvinn hefst klukkan 16:46:49 og almyrkvinn klukkan 17:47:50.

Þetta er í fyrsta sinn síðan 1954 sem almyrkvi er sjáanlegur frá Íslandi og sá fyrsti sem verður sjáanlegur frá Akranesi frá því árið 73 eftir Krist. Almyrkvinn mun sjást frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga.

Eins og alkunna er mun mikill fjöldi erlendra gesta sækja Ísland heim af þessu tilefni og vitað er að hluti þeirra hyggst fylgjast með almyrkvanum frá Akranesi auk innlendra gesta. Því má búast við aukinni umferð í bænum þennan dag, álagi á þjónustu, eftirspurn eftir bílastæðum og tjaldstæðum.

Fjölmargir fallegir staðir koma til greina fyrir þá sem vilja fylgjast með sólmyrkvanum á Akranesi, en áhugasömum er sérstaklega bent á Breiðina og Langasand. Þar er nóg pláss, fallegt umhverfi og gott útsýni.

Hér fyrir neðan má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar. Við bendum einnig á síðuna www.solmyrkvi2026.is. Þar má meðal annars finna kortið hér fyrir neðan, en á því má slá inn staðsetningu eða heimilisfang í leitargluggann efst til vinstri og fá nákvæmar upplýsingar um hvenær almyrkvinn skellur þar á og hversu lengi hann sést.

 

Sólmyrkvagleraugu

Sólmyrkvagleraugu eru nauðsynleg til að geta fylgst með almyrkvanum á öruggan hátt. Viðurkennd sólmyrkvagleraugu veita 100% vernd gegn útfjólubláu og innrauðu ljósi auk þess að sía í burtu 99,999% af styrk sólarljóssins.

Gleraugun eru aðeins notuð þegar tunglið er að færast yfir sólina. Þau eru svo tekin af þegar almyrkvinn skellur á og sett aftur upp eftir hann. Við almyrkvann verður að horfa með berum augum og það er öruggt þar sem tunglið er fyrir sólinni.

Akraneskaupstaður færði öllum nemendum í grunnskólum bæjarins og elstu börnum í leikskóla sérmerkt sólmyrkvagleraugu að gjöf. Mikilvægt er að þau séu heil og nauðsynlegt er að skoða þau vandlega fyrir notkun. Nánari leiðbeiningar um notkun gleraugnanna er að finna á þeim innanverðum.

Sólmyrkvagleraugu hafa einnig fengist á ýmsum sölustöðum í bænum auk þess sem hægt er að panta þau hér.

Nánar um öryggi augna

 

Bílastæði

Bæjarbúar eru eindregið hvattir til að geyma bílana heima þennan dag og ganga eða hjóla eigi þeir þess kost.

Annars má sjá yfirlit yfir helstu bílastæði á meðfylgjandi mynd þar sem grænar línur tákna aðgengileg svæði við sjóinn og rauða örin bendir í átt til sólar meðan á almyrkva stendur.



Sérstök áætlun fyrir rútur og aðra stærri bíla verður birt á næstu dögum.

Tjaldsvæði

Tjaldsvæðið á Akranesi er staðsett í Kalmansvík, á hægri hönd fljótlega eftir að komið er inn í bæinn. Það er hægt að finna með því að velja "tjaldsvæði" í flokknum "þjónusta og afþreying" hér í Kortasjá.

Þaðan er afar fallegt útsýni auk þess sem Elínarhöfði er skammt frá, en þar er einnig kjörið tækifæri til að verða vitni að almyrkvanum umkringdur fallegri náttúru.

Hægt er að finna allar nánari upplýsingar um tjaldsvæðið inni á tjalda.is.

Veður og vindar

Íbúar og gestir eru að sjálfsögðu hvattir til að fylgjast með veðurspá, en ef marka má Sævar Helga Bragason, betur þekktan sem Stjörnu-Sævar, mun almyrkvinn verða ótrúleg sjón í hvaða veðri sem er.

Gaman er að geta þess að Sævar heimsótti börn í leik- og grunnskólum á Akranesi í vor til að fræða þau um almyrkvann.

Hvað ef það verður skýjað?

Salerni

Gestir sem munu fylgjast með almyrkvanum við Langasand geta nýtt sér salernisaðstöðu í nýju íþróttahúsi Akurnesinga við Jaðarsbakka auk þeirra salerna sem eru við Guðlaugu.

Afgreiðsla Akranesvita verður einnig opin meðan á almyrkvanum stendur og gestir við Breiðina geta nýtt salernisaðstöðu þar. Vitinn sjálfur verður lokaður af öryggisástæðum.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu