Börn fengu sólmyrkvagleraugu að gjöf
Allir nemendur í grunnskólum Akraness og elstu börnin í leikskólum bæjarins hafa fengið sérmerkt sólmyrkvagleraugu frá Akraneskaupstað að gjöf. Gleraugunum er ætlað að tryggja að þau geti notið þess á öruggan hátt að fylgjast með almyrkva á sólu sem verður þann 12. ágúst næstkomandi.
Eins og fram hefur komið mun almyrkvinn sjást vel hér á Akranesi, en einnig frá Vesturlandi, Vestfjörðum, Snæfellsnesi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga. Þetta er fyrsti almyrkvi sem verður sjáanlegur frá Íslandi síðan árið 1954, en sá fyrsti sem er sjáanlegur frá Akranesi frá því árið 73 eftir Krist.
Akraneskaupstaður fékk einnig Sævar Helga Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, í heimsókn til að fræða nemendur í leik- og grunnskólum um almyrkvann.

Sólmyrkvagleraugu eru nauðsynleg til að geta fylgst með almyrkvanum á öruggan hátt. Þau uppfylla allar kröfur um öryggi, veita 100% vernd gegn útfjólubláu og innrauðu ljósi auk þess að sía í burtu 99,999% af styrk sólarljóssins.
Gleraugun eru aðeins notuð þegar tunglið er að færast yfir sólina. Þau eru svo tekin af þegar almyrkvinn skellur á og sett aftur upp eftir hann. Við almyrkvann verður að horfa með berum augum og það er öruggt þar sem tunglið er fyrir sólinni.
Sævar Helgi heldur úti vefsíðunni www.solmyrkvi2026.is. Þar er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um almyrkvann, nákvæma tímasetningu og fleira auk pistils um öryggi augna.

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015