Fara í efni  

Breytingar á afgreiðslu húsaleigubóta

Grásleppukarlarnir í Kalmansvík.
Grásleppukarlarnir í Kalmansvík.

Þann 1. janúar 2017 tóku í gildi ný lög um húsnæðisbætur sem samþykktar voru á Alþingi síðastliðið sumar. Lög um húsaleigubætur með skilgreindu hlutverki sveitarfélaganna varðandi afgreiðslu þeirra eru því fallin úr gildi.

Greiðslur húsnæðisbóta, eins og þær kallast samkvæmt nýjum lögum, eru inntar af hendi hjá Greiðslustofu húsnæðisbóta á vegum Vinnumálastofnunar. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðunni www.husbot.is en þar er hægt að sækja um húsnæðisbætur og einnig er þar aðgengileg reiknivél, sem umsækjendur geta nýtt sér. Eins og áður þarf að endurnýja umsókn um húsnæðisbætur á hverju ári fyrir 20. janúar.

Sérstakar húsaleigubætur breyta um heiti og verða sérstakur húsnæðisstuðningur. Áðurnefndur húsnæðisstuðningur verður áfram greiddur frá sveitarfélögum. Hér á heimasíðu Akraneskaupstaðar er hægt að nálgast umsóknareyðublað vegna sérstaks húsnæðisstuðnings en vakin er athygli á því að umsækjendur verða að hafa sótt um húsnæðisbætur fyrst hjá Greiðslustofu. 

Frekari upplýsingar og aðstoð má nálgast heimasíðunni www.husbot.is, hjá Vinnumálastofnun í síma 515-4800 og í þjónustuveri Akraneskaupstaðar í síma 433-1000.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00