Fara í efni  

Bláfáninn dreginn að húni á Langasandi í sjötta sinn

Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun sem er veitt sem tákn um góða umhverfisstjórnun. Það var Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri frá Landvernd sem afhenti Sævari Frey Þráinssyni bæjarstjóra fánann. Börn og starfsfólk frá Akraseli, Garðaseli og Grundaskóla voru viðstödd fánahyllinguna ásamt bæjarfulltrúum og starfsfólki Akraneskaupstaðar.

Til að fá Bláfánann þarf baðströndin á Langasandi að uppfylla 32 skilyrði sem lúta að vatnsgæðum, umhverfisstjórnun, upplýsingagjöf og öryggi. Það eru einungis tvær aðrar baðstrendur sem hafa fengið fánann á Íslandi, Bláa Lónið og Nauthólsvík en sérstaða Langasands er að um náttúrulega strönd er að ræða. Akraneskaupstaður tekur sýni úr sjónum reglulega og hafa þau komið mjög vel út. Þá er einnig fjölmörg fræðsluverkefni unnin með börnum á öllum aldri á Akranesi í tengslum við umhverfið og Langasand. Hér á vef Landverndar má nálgast frekari upplýsingar um Bláfánann.

Fræðsluverkefni verða svo unnin í tengslum við Bláfánann af börnum og ungmennum á Akranesi og er markmiðið að þau verði sýnileg fyrir almenning.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00