Fara í efni  

BLÁFÁNANUM FLAGGAÐ VIÐ LANGASAND Í TÍUNDA SKIPTIÐ

Akraneskaupstaður fékk í dag afhentan Bláfánann fyrir Langasand. Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun í boði fyrir baðstrendur, ferðaþjónustubáta og smábátahafnir og þurfa umsækjendur sem hljóta Bláfánann að hafa staðist strangar kröfur á sviði umhverfismála, öryggis, fræðslu og samfélagslegrar ábyrgðar. Niðurstöður úttekta eru staðfestar af innlendri vottunarnefnd skipuð eru sérfræðingar hverjum á sínu sviði auk alþjóðlegrar vottunarnefndar sem tryggir sambærileg gæði á kröfum og úttektum um allan heim. Glöggir landsmenn sem ferðast hafa til Kanaríeyja hafa eflaust rekið augun í Bláfánann á þeim tæplega 40 ströndum sem þar eru vottaðar. Þær strandir eiga það sameiginlegt með Langasandi að mikið er lagt af mörkum til umhverfismála og þess að gæta öryggis notenda og vegfarenda. Það getur því borgað sig að fylgjast með hvar Bláfáninn blaktir við hún þegar velja á afþreyingu eða áningarstað við sjávarsíðuna.

Þetta er tíunda árið sem Langisandur hlýtur Bláfánann. Það voru bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, Sævar Freyr Þráinsson og garðyrkjustjóri Akraneskaupstaðar Jón Arnar Sverrisson sem tóku við Bláfánanum úr hendi Ragnars Þórðarsonar frá Vottunarstofunni Túni ehf. sem fer með framkvæmd og eftirlit Bláfánans á Íslandi. Viðstaddir athöfnina voru börn og starfsfólk úr leikskólum,  starfsmenn vinnuskóla Akraneskaupstaðar ásamt starfsfólki bæjarskrifstofu. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00