Fara í efni  

Bankaútboð Akraneskaupstaðar

Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í bankaþjónustu fyrir Akraneskaupstað og stofnanir hans fyrir tímabilið 1. maí 2022 til 30. apríl 2027. Um er að ræða öll bankaviðskipti önnur en langtímalán.

Þau viðskipti sem óskað er eftir tilboðum í, eru innlánsviðskipti á tékkareikningi og útlánsviðskipti svo sem yfirdráttur á bankareikningi, ýmis þjónustugjöld vegna innheimtu og aðgangur að fyrirtækjabanka.

Útboðsgögn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á kristjanao@akranes.is frá og með 1. febrúar 2022.

Tilboðum skal skila á bæjarskrifstofur Akraneskaupstað, Dalbraut 4, fyrir kl 12:00, föstudaginn 4. mars 2022 og verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta.

Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00