Fara í efni  

Bæjarstjórnarfundur unga fólksins

19. fundur bæjarstjórnar unga fólksins verður haldinn þriðjudaginn 17. nóvember 2020. Í ljósi aðstæðna verður hann að þessu sinni í fjarfundi og hefst hann kl. 17:00. Fulltrúar úr Ungmennaráði Akraness taka nú sæti í bæjarstjórn í nítjánda sinn. Ungmennaráð, er skipað níu fulltrúum nemendafélaga grunnskólanna, nemendafélags FVA, Tónlistarskóla Akranes, fulltrúa ÍA og fulltrúum félagsmiðstöðvanna tveggja þ.e. Arnardals og Hvíta hússins. Bæjarfulltrúar Akraneskaupstaðar sitja fundinn og svara erindum ungmennanna.

Fundur bæjarstjórnar unga fólksins er öllum opin en þar sem hann fer fram í gegnum fjarfund þá er útvarpsútsending ekki fyrir hendi. Bæjarbúar eru hvattir til þess að fylgjast með beinni útsendingu á facebooksíðu Akraneskaupstaðar.

 

Efni fundarins má nálgast hér


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00