Fara í efni  

Bæjarstjóri færði áhöfninni á Lundey NS 14 rjómatertu

Arnþór Hjörleifsson og Regína Ásvaldsdóttir
Arnþór Hjörleifsson og Regína Ásvaldsdóttir

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri færði áhöfninni á Lundey NS 14 rjómatertu í dag, þann 3. febrúar, í tilefni þess að verið var að landa fyrstu loðnunni á Akranesi í ár. Lundey sigldi í Akraneshöfn um klukkan þrjú  í dag með um 1.550 tonn af loðnu. Arnþór Hjörleifsson skipstjóri á Lundey tók við tertunni en fimmtán manns eru í áhöfninni. Lundey stoppar í 10 tíma á Akranesi en skipið fór til veiða í lok janúar. Lundey NS 14 er í eigu HB Granda og er skráð á Vopnafirði. ,,Þetta er skemmtileg hefð sem er um að gera að halda við“ sagði Regína en áralöng hefð er fyrir því á Akranesi að gefa áhöfn fyrsta loðnubátsins rjómatertu. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00