Fara í efni  

Bæjarlistamaður Akraness 2018 er Eðvarð Lárusson tónlistarmaður

Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, Eðvarð Lárusson tónlistarmaður og Ingþór Bergmann Þórhallsson for…
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, Eðvarð Lárusson tónlistarmaður og Ingþór Bergmann Þórhallsson formaður menningar- og safnanefndar. Mynd: Myndsmiðjan.

Eðvarð Lárusson, tónlistarmaður, er Bæjarlistamaður Akraness árið 2018.

Eðvarð, eða Eddi eins og hann er oftast kallaður, hóf ungur að árum að leika á gítar og lærði gítarleik fyrst í Tónlistarskólanum á Akranesi og síðar meir í Tónlistarskóla FÍH og útskrifaðist þaðan frá djassdeild árið 1991.

Hann hefur á löngum og farsælum ferli spilað með mörgum af þekktustu tónlistarmönnum landsins. Hann vakti fyrst athygli á Akranesi á unglingsaldri með Skaga-hljómsveitinni Tíbrá. Úr Tíbrá fór hann í Start og síðan hefur hann meðal annars spilað með Bubba, Blúsboltunum og Bítladrengjunum blíðu, Andreu Gylfadóttur vinkonu sinni, verið gítarleikari Stórsveitar Reykjavíkur, J.J. Soul Band og Gæðablóðum svo eitthvað sé nefnt. Hann hefur komið fram á hundruðum ef ekki þúsundum tónleika, spilað inn á fjöldan allan af hljómplötum og lögum, og ekki bara spilað heldur líka útsett.

Í apríl 2015 hélt Eddi sína fyrstu eiginlegu sólótónleika. Á efnisskránni var tónlist eftir Neil Young í útsetningum Edda, en með honum spiluðu þar þeir Karl Pétur Smith á trommur og Pétur Sigurðsson á bassa. Þetta vakti talsverða athygli.

Eddi hefur lengi starfað sem kennari við Tónlistarskólann á Akranesi. Hann hóf fyrst störf árið 1984 en hefur starfað við skólann óslitið frá árinu 2008. Hann hefur snert strengi í hjörtum ótal nemenda og þannig haft mikil og jákvæð áhrif á tónlistarmenntun Skagamanna og tónlistarlífið á Akranesi. Það er fátt sem reynist tónlistarnemanda betur en góður kennari sem kennir ekki bara á hljóðfærið heldur hvetur áfram og opnar augu og eyru nemandans fyrir töfrum tónlistarinnar. Eddi er vinsæll kennari og hefur sett saman hópa og hljómsveitir innan skólans og margsinnis komið fram með nemendum við hin ýmsu tækifæri. Nýlegt dæmi er hljómsveitarstjórn í söngleiknum Með allt á hreinu sem NFFA setti upp í samstarfi við Tónlistarskólann nýliðinn vetur.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00