Fara í efni  

Opið fyrir styrkumsóknir til menningar- og íþróttaverkefna

Akraneskaupstaður auglýsir eftir styrkumsóknum til menningar- og íþróttaverkefna á árinu 2019. Við mat og afgreiðslu styrkja til menningarverkefna verður lögð sérstök áhersla á að styðja við verkefni sem vinna að markmiðum Menningarstefnu Akraness sem var samþykkt fyrr á árinu. Við mat og afgreiðslu styrkja til íþróttaverkefna verður lögð áhersla á að styrkja verkefni sem efla íþróttastarf á Akranesi. Umsóknarfrestur er til og með 16. desember.

Úthlutunarreglur kaupstaðarins eru aðgengilegar hér 

Umsóknareyðublað er í íbúagáttinni og aðgengilegt hér


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00