Fara í efni  

Auglýsing um niðurstöðu bæjarstjórnar vegna skipulags Skógarhverfis og Garðalundar-Lækjarbotna

Breyting á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017

Stækkun Skógarhverfis

Bæjarstjórn Akraness samþykkti þann 10. nóvember 2020, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017. Tillagan var auglýst frá 4. september til 20. október 2020. Athugasemdir gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.

Deiliskipulag Skógarhverfis, áfangi 3A

Bæjarstjórn Akraness samþykkti þann 10. nóvember 2020, tillögu að nýju deiliskipulagi Skógarhverfis áfanga 3A. Tillagan var auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim, sem gerðu athugasemdir verið send umsögn bæjarstjórnar. Hægt er að kæra samþykkt bæjarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

Deiliskipulag Garðalundar - Lækjarbotna

Bæjarstjórn Akraness samþykkti þann 10. nóvember 2020, tillögu að nýju og breyttu deiliskipulagi Garðalundar - Lækjarbotna. Tillagan var auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim, sem gerðu athugasemdir verið send umsögn bæjarstjórnar. Hægt er að kæra samþykkt bæjarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00