Fara í efni  

Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfi 2. áfanga

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkti á 27. júní s.l. að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis 2. áfanga vegna lóða við Fagralund og Akralund, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan felst í að breyta einbýlishúsalóðum við Fagralund 1, 3, 5, 7 og 2, 4, 6 í tvær þriggja íbúða raðhúsalóðir og þrjár parhúsalóðir (12 íbúðir). Fjölbýlishúsalóðir við Akralund 8, 10, 12 og 14 er breytt í tvær fjögurra íbúða raðhúsalóðir (ein til tvær hæðir) og eina parhúsalóð (ein til tvær hæðir).

Tillagan verður til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18, Akranesi  og á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is frá og með 4. júlí  til og með 17. ágúst 2019. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 17. ágúst í þjónustuver Akraneskaupstaðar eða á netfangið skipulag@akranes.is

DEILISKIPULAGSUPPDRÁTTUR


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00