Fara í efni  

Samþykkt breyting á deiliskipulagi Æðarodda vegna reiðskemmu

Bæjarstjórn Akraness samþykkti 27. júní s.l.  breytingu á deiliskipulagi Æðarodda skv. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.

Tillagan var auglýst skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Breyting var gerð á auglýstri tillögu, vegna ábendinga sem bárust þ.e. byggingarreitur var færður lengra frá reiðleið eða um 2 metra til suð-austurs.

Hægt er að kæra samþykkt til sveitastjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.




Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu