Fara í efni  

Auglýsing um aðalskipulag Akraness 2021-2033

Bæjarstjórn Akraness auglýsir hér með tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Akraness ásamt umhverfismatsskýrslu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan felur í sér endurskoðun á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 og er sett fram á uppdrætti, í greinargerðum og í vefsjá https://map.is/akranes/skipulagskynning/.

Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Akraneskaupstaðar, Dalbraut 4, hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykjavík, og í vefsjá á vefsíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is frá og með 20. júní 2022 til og með 5. ágúst. 2022.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 5. ágúst 2022. Athugasemdir skulu vera skriflegar og undirritaðar með nafni, kennitölu og heimilisfangi. Þeim skal skila á bæjarskrifstofu Akraness, Dalbraut 4, 300 Akranesi, eða á netfangið skipulag@akranes.is, merktum Aðalskipulag 2033.

Hér má sjá fylgigögn með því að smella á viðeigandi hlekki:

Aðalskipulag uppdráttur

 Umhverfismatsskýrsla

 Forsendur

Greinargerð

 Bent er á að athugasemdir við aðalskipulag eru opinber gögn.  

Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00