Fara í efni  

Átak til atvinnusköpunar

Frumkvöðlakvöld á Akranesi í mars 2014.
Frumkvöðlakvöld á Akranesi í mars 2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja. 

Átak til atvinnusköpunar - Á markað með snjallt nýsköpunarverkefni.

Markmið verkefnis:

  • Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta
  • Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja

Sérstök áhersla er lögð á

  • Verkefni sem skapa ný störf
  • Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sem byggir á hönnun
  • Nýsköpun sem á sér stað í klasasamstarfi
  • Verkefni sem eru að stíga fyrstu skref á alþjóðamarkað

Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins. Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. í tækjum og tækjabúnaði. 

Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið hildur@nmi.is. Umsóknarfrestur til kl. 12:00 á hádegi þann 28. september.

Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð eru á www.nmi.is 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00