Fara í efni  

Áskorun til ríkisstjórnar Íslands um stefnubreytingu í málefnum orkukræfs iðnaðar

Bæjarstjórn Akraness og sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar komu saman til sameiginlegs fundar mánudaginn 26. ágúst 2019 vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er komin í atvinnumálum á Grundartanga og leitt getur til verulegs samdráttar í starfsemi orkukræfs iðnaðar og fækkun starfa.

Núverandi atvinnustarfsemi á Grundartangasvæðinu hefur byggst upp á löngum tíma og er gríðarlega mikilvæg fyrir sveitarfélögin á Vesturlandi, Akranes, Hvalfjarðarsveit og í vaxandi mæli Borgarbyggð. Nærri lætur að um 1.100 bein störf séu í þeim 20 atvinnufyrirtækjum sem þar reka starfsemi og annar eins fjöldi starfa tengist þjónustu við þessi fyrirtæki og þá sérstaklega stærstu fyrirtækin Elkem og Norðurál.

Ötullega hefur verið unnið að því undanfarin ár á vettvangi samstarfs Þróunarfélags Grundartanga, Norðuráls, Elkem og Faxaflóahafna að finna, greina og nýta þau tækifæri sem svæðið býr yfir til vaxtar og aukinnar verðmætasköpunar.  Þar hefur sérstök áhersla verið lögð á umhverfismál, nýsköpun og fullnýtingu efnis- og auðlindastrauma á sviði orkuvinnslu og orkuendurvinnslu sem nýtt verði til uppbyggingar nýrra fyrirtækja með tilheyrandi fjölgun starfa.  Því miður er nú margt sem bendir til þess að sú mikla vinna sé unnin fyrir gíg vegna breytinga á rekstrarumhverfi orkukræfs iðnaðar á Íslandi. Afleiðingar þessa má m.a. sjá í niðurstöðu gerðardóms um orkuverð til Elkem á Grundartanga.       

Stjórnvöld á Íslandi sköpuðu orkukræfum iðnaði góð skilyrði til rekstrar með sanngjörnu raforkuverði og fengu með því til sín öflug fyrirtæki sem mörg hver hafa verið í rekstri um áratugaskeið, þau hafa greitt há laun og haft mjög jákvæð áhrif á uppbyggingu sinna nærsamfélaga. Jafnframt hafa þau lagt  mikið af mörkum til uppbyggingar raforkuinnviða samfélagsins í heild. Að auki er rétt að benda á mikilvægi framleiðsluvara fyrirtækja á Grundartanga sem eru lykilframleiðendur ýmissa sérvara sem leitað er eftir til lausnar í þeim orkuskiptum sem nú eru að eiga sér stað og kallað er eftir á heimsvísu.

Nú er hins vegar svo komið að rekstrarumhverfi orkukræfs iðnaðar á Íslandi hefur versnað til muna og það samkeppnisforskot sem hér var í orkuverði er algjörlega horfið.  Kjörnir fulltrúar á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit kalla eftir svörum um hver tók ákvörðun um þessa stefnubreytingu og á hvaða vettvangi hún var tekin.

Birtingarmynd þessarar ákvörðunar er  framganga Landsvirkjunar, fyrirtækis sem er að öllu leyti í eigu ríkisins og hefur í krafti einokunarstöðu í raforkusölu á stórnotendamarkaði knúið fram mjög miklar verðhækkanir á raforku til orkukræfs iðnaðar.  Forstjóri fyrirtækisins hefur endurtekið lýst því yfir að hlutverk þess sé meðal annars verðmætasköpun en fram til þessa hefur sú verðmætasköpun eingöngu snúist um að hámarka arðsemi Landsvirkjunar en ekki að horfa til heildarhagsmuna þjóðarinnar.  Því vilja kjörnir fulltrúar sveitarfélaganna minna á að í fyrirhugaðri orkustefnu má finna eftirfarandi leiðarljós:

  • Að hámarka samfélagslegan ávinning af nýtingu orku
  • Stuðningur stefnunnar við atvinnustefnu og samspil við lykilatvinnugreinar
  • Stuðningur stefnunnar við byggðastefnu og jákvæða byggðaþróun til lengri tíma

Með hliðsjón af framansögðu skora bæjarstjórn Akraness og sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar á íslensk stjórnvöld að endurskoða núverandi stefnu í málefnum orkukræfs iðnaðar á Íslandi og setja Landsvirkjun eigendastefnu án tafar sem tekur m.a. mið af ofangreindum leiðarljósum í framtíðarorkustefnu Íslands.

Bæjarstjórn Akraness                                   Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar

Bára Daðadóttir (S) sign                                 Atli Viðar Halldórsson (Í) sign

Elsa Lára Arnardóttir (B) sign                        Björgvin Helgason (Á) sign    

Einar Brandsson (D) sign                               Brynja Þorbjörnsdóttir (H) sign         

Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir (S) sign      Bára Tómasdóttir (Á) sign     

Ólafur Adolfsson (D) sign                              Daníel Ottesen (Á) sign         

Ragnar B. Sæmundsson (B) sign                  Guðjón Jónasson (Á) sign      

Rakel Óskarsdóttir (D) sign                            Ragna Ívarsdóttir (Í) sign       

Sandra Margrét Sigurjónsdóttir (D) sign

Valgarður Lyngdal Jónsson (S) sign


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00