Arnbjörg og Laufey kveðja eftir farsælan feril í þjónustu við samfélagið
Akraneskaupstaður kvaddi í gær tvær afar dýrmætar starfskonur sem hafa skilað ómetanlegu framlagi til samfélagsins okkar – þær Laufey Jónsdóttur og Arnbjörgu Stefánsdóttur.
Laufey Jónsdóttir hefur starfað fyrir Akraneskaupstað síðan árið 2011 og verið öflugur hlekkur í velferðarþjónustu bæjarins. Laufey hefur verið í fararbroddi við að innleiða nýjungar og breytt verklag, og hefur þannig haft djúpstæð áhrif á þróun þjónustunnar. Undanfarna mánuði hefur hún sinnt mikilvægu hlutverki sem tengiráðgjafi á Vesturlandi í verkefninu Gott að eldast, sem miðar að því að draga úr félagslegri einangrun og efla virkni eldra fólks. Hún mun áfram gegna mikilvægu hlutverki í þjónustu við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra – verkefni sem hún hefur þróað af miklum metnaði og frumkvæði.
Arnbjörg Stefánsdóttir Skólastjóri Brekkubæjarskóla, lætur af störfum þann 31. júlí eftir langan og farsælan feril sem leiðtogi í skólamálum á Akranesi. Hún hefur í 20 ár stýrt starfi skólans með framsýni, alúð og eldmóði, og lagt sitt af mörkum til að tryggja gæði menntunar og vellíðan nemenda, starfsfólks og samfélagsins alls. Arnbjörg heldur nú til nýrra starfa sem formaður Skólastjórafélags Íslands, og færir Akraneskaupstaður henni innilegar þakkir fyrir óeigingjarnt og ómetanlegt starf í þágu barna og ungmenna bæjarins.
Með þakklæti og hlýhug kveðjum við tvær öflugar konur sem hafa mótað samfélagið okkar til hins betra. Vegferð þeirra heldur áfram og við óskum þeim innilega velfarnaðar í þeim verkefnum sem fram undan eru.
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember