Fara í efni  

Fréttir

Kjördæmavika þingmanna Norðvesturkjördæmis

Í síðustu viku fóru fram hinir svokölluðu kjördæmadagar þar sem þingmenn fóru út í kjördæmin sín og hittu kjósendur, sveitarstjórnarfólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri.
Lesa meira

Bæjarráð Akraness samþykkir styrkveitingu til KFÍA

Á fundi bæjarráðs Akraness þann 10. október síðastliðinn samþykkti bæjarráð Akraness tillögu Rakelar Óskarsdóttur bæjarfulltrúa um að veita KFÍA styrk að fjárhæð 1,0 m.kr. vegna árangurs meistaraflokks og annars flokks karla í knattspyrnu í ár. Meistaraflokkur karla sigraði Inkasso deildina með 48 stigum og fara...
Lesa meira

Dýraeftirlit - hunda- og kattahreinsun

Hunda- og kattaeigendur athugið Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002 er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýr sín árlega og er það innifalið í leyfisgjaldi.
Lesa meira

Bæjarstjórnarfundur 9. október

1280. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 9. október kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0.
Lesa meira

Hreystigarður fyrir fullorðna uppsettur á Langasandi árið 2019

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 4. október síðastliðinn að settur yrði upp hreystigarður fyrir fullorðna sem staðsettur yrði á Langasandssvæðinu, fyrir neðan Akraneshöllina þar sem m.a. ærslabelgurinn er staðsettur. Hreystigarðurinn verður útbúinn átta hreystitækjum með gervigras sem undirlag og gróður í kring til skjól- og rýmismyndunar.
Lesa meira

Fyrsta skóflustungan tekin á byggingu nýs íbúðarkjarna á Asparskógum

Fyrsta skóflustungan á byggingu nýs íbúðarkjarna á Asparskógum á Akranesi var tekin kl. 10 í morgun þann 4. október. Það er Bjarg íbúðafélag sem byggir 33 leiguíbúðir á svæðinu og er reiknað með að afhending til leigutaka verði í tvennu lagi eða þann 1. júní og 1. júlí 2019. Akraneskaupstaður fær átta íbúðir til ráðstöfunar í íbúðarkjarnanum.
Lesa meira

Tónlistarupptaka í Akranesvita

Akranesviti verður lokaður að hluta til í dag vegna upptöku tónlistar innan vitans. Hópur frá Bandaríkjunum undir heitinu „Apartment sessions" kemur þar saman til að flytja og taka upp tónlist frá öllum heimshornum. Hópurinn samanstendur af 40 einstaklingum sem eru nú öll komin til Íslands í þeim tilgangi að....
Lesa meira

Akranes tekur þátt í Útsvari

Akranes verður með lið í spurningakeppni á milli sveitarfélaga í sjónvarpsþættinum Útsvari á RÚV. Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga sem fer nú fram tólfta árið í röð og í þetta sinn verður keppnin snarpari en áður og lýkur með úrslitum í janúar. Þátttakendur í vetur eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komist hafa í úrslit síðustu ár, eða oftast komist nálægt því.
Lesa meira

Gatnaframkvæmdir við Esju- og Kalmansbraut

Gatnaframkvæmdir eru hafnar við Esju- og Kalmansbraut þar sem verið er að endurgera hringtorgið Kalmanstorg, útbúa nýjan göngustíg norðan við Esjubraut og lagfæra yfirborð á Esjubrautar til austurs frá Kalmanstorgi að Esjutorgi. Samhliða þessum framkvæmdum munu Veitur endurnýja hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu.
Lesa meira

Lýsing á breytingu á aðalskipulagi Akraness vegna Grenja H3 hafnarsvæði

Bæjarstjórn Akraness samþykkti þann 25. september 2018 að auglýsa lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Akraness 2005-2017 vegna Grenja H3 hafnarsvæði skv. 1. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í nánari skilgreiningu þeirrar starfsemi sem heimil verður á Grenjum H3 hafnarsvæði.
Lesa meira
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00