Fara í efni  

Ár mikillar uppbyggingar og sóknar í atvinnumálum framundan á Akranesi

Langisandur.
Langisandur.

Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2021 og þriggja ára áætlun 2022 til 2024 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akraness þriðjudaginn 15. desember síðastliðinn (sjá hér). Einnig var fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun samþykkt.

Helstu atriði fjárhagsáætlunar 2021 eru:

  • Gert er ráð fyrir óbreyttu útsvari á árinu 2021, eða 14,52%.
  • Að flestar gjaldskrár hækki í samræmi við lífskjarasamninga, eða um 2,5% en tiltektar gjaldskrár hækka umfram það samkvæmt sérstakri ákvörðun s.s. gjaldskrár leikskóla, skólamáltíða, frístundar, Tónlistaskóla Akraness og íþróttamannvirkja.
  • Álagningarprósentur fasteignaskatts eru ákvarðarðar í takt við þróun lífskjarasamninga og verða 0,2514% fyrir íbúðarhúsnæði og 1,4% fyrir atvinnuhúsnæði. Stofn álagningaprósentu íbúðarhúsnæðis hefur lækkað um 30,30% og atvinnuhúsnæðis um 15,15% á síðustu fjórum árum.
  • Lóðarleiga af nýjum lóðum og endurnýjuðum samningum verður 1,199% af fasteignamatsverði atvinnulóða og 0,3034% af fasteignamatsverði íbúðarhúsalóða.

Rekstrarafkoma Akraneskaupstaðar á árinu 2020 er áætluð að verði neikvæð um 35 m.kr. eða sem nemur -0,5% sem hlutfall af tekjum sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að rekstarhagnaður verði 113 m.kr. á árinu 2021. Rekstrarafkoma næstu ára, þ.e. á árunum 2021 til 2024, er áætluð að meðaltali 148 m.kr. Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar gerir ráð fyrir umfangsmiklum fjárfestingum næstu árin og er fyrirhuguð lántaka vegna þess á næstu þremur árum áætluð 2060 m.kr. Samhliða því er fyrirhugað að greiða niður langtímalán að fjárhæð 835 m.kr. og greiðslu lífeyrisskuldbindingar að fjárhæð 822 m.kr. til ársins 2024.

Akraneskaupstaður mun viðhalda ábyrgri fjármálastefnu og sjá til þess að vera vel innan þeirra fjárhagslegu viðmiða sem gerð eru til sveitarfélaga, þ.e. að rekstrarjöfnuður síðustu þriggja ára (samanlögð rekstrarafkoma á þriggja ára tímabili) verði jákvæður sem nemur 734 m.kr. í árslok 2021. Fjárhagsáætlunin gerir jafnframt ráð fyrir að rekstrarjöfnuður muni nema rúmum 478 m.kr. í árslok 2024 þrátt fyrir umtalsverðar fjárfestingar í innviðum bæjarins á þeim tíma og aukningu rekstargjalda s.s. vegna nýs íþróttahúss á Jaðarsbökkum, þjónustumiðstöðvar aldraðra og vegna nýs leikskóla.

Skuldaviðmið sveitarfélagsins, þ.e. heildarskuldir og skuldbindingar A- og B- hlutans sem hlutfall af reglulegum tekjum, mun fara hækkandi samkvæmt fjárhagsáætluninni. Áætlað skuldaviðmið sveitarfélagsins í árslok 2021 mun nema 43% en hámark sveitarfélaga er 150% af reglulegum tekjum þess. Fjárhagsáætlun Akranes gerir ráð fyrir því að skuldaviðmiðið fari hækkandi og muni verða um 46% í lok árs 2024. Veltufjárhlutfall samstæðunnar er jafnframt sterkt og nemur 1,64 en veltufjárhlutfall segir til um hversu vel sveitarfélagið er í stakk búið til að mæta nauðsynlegum greiðslum á næstu 12 mánuðum og á helst ekki að vera undir 1,0 til lengri tíma litið. Veltufjárhlutfall sveitarfélagsins mun fara lækkandi á tímabili fjárhagsáætlunarinnar í samræmi við aukna fjárfestingu. Áætlað er að veltufjárhlutfallið nemi 1,4 í árslok 2024.

Áætlað er að fjárfesta fyrir um 1.854 m.kr. á árinu 2021 og eru 4.225 m.kr. fyrirhugaðar í fjárfestingar og framkvæmdir á næstu fjórum árum.

Meðal fjárfestinga og uppbyggingaverkefna á árinu 2021 eru:

Menntun og frístundamál:
Í hönnun er nýr sex deilda leikskóli sem hefur möguleika á stækkun í átta deildir og byrja framkvæmdir á árinu. Endurbætur í Brekkubæjarskóla halda áfram og munu bætast þar við kennslustofur á árinu ásamt því að gert er ráð fyrir verulega auknu fjármagni til endurbóta á grunnskólalóðunum. Þekjan verður endurbætt en hún er hluti af tengingu nýja fimleikahússins við íþróttahúsið.

Íþróttir:
Lokið verður við byggingu fimleikahússins á árinu og byggingu reiðskemmu hjá Hestamannafélaginu Dreyra ásamt því sem stærsta framkvæmd um árabil mun hefjast með uppbyggingu íþróttamannvirkja á Jaðarsbökkum. Í fyrsta áfanga verður byggt íþróttahús, búningsklefar, líkamsræktaraðstaða, geymslur o.fl.

Velferð og mannréttindi:
Framkvæmdir við enduruppbyggingu Fjöliðjunnar munu hefjast á árinu og sömuleiðis framkvæmdir við byggingu tíu íbúða fyrir fatlaða og öryrkja í samstarfi við Brynju Hússjóð á Dalbrautarreit. Liður í aðgerðum til að stuðla að atvinnuuppbyggingu á tímum Covid-19 er að hefja framkvæmdir í Asparskógum í samstarfi við Bjarg íbúðafélag og á Dalbrautarreit í samstarfi við Leigufélag aldraða. Framkvæmdum innanhúss í þjónustumiðstöð fyrir aldraða að Dalbraut 4 mun ljúka á árinu.

Götur og stígar:
Gatnaviðgerðir eru fyrirhugaðar við hluta af Garðagrund og Suðurgötu ásamt almennu viðhaldi gatna sem verður kynnt frekar á næstu mánuðum. Ný gatnagerð er fyrirhuguð í Flóahverfi, Skógarhverfi, Breiðargötu og á hluta Höfðasels. Framkvæmdir við nýja upphækkaða Faxabraut ásamt grjótvörn og stíg verða kláraðar á árinu. Þá verður einnig hafist hana við gerð stígs upp í Flóahverfi.

Atvinnutengd verkefni:
Fyrirhuguð er sókn í uppbyggingu atvinnu í samstarfi við þróunarfélögin á Breið og Grundartanga. Má þar nefna uppbyggingu á rannsóknar- og nýsköpunarstarfsemi og rekstur hitaveitu á Grundartanga. Nýr kynningarvefur vegna uppbyggingar í Flóahverfi, á Dalbrautarreit, á Langasandsreit og í Skógarhverfi verður opnaður í upphafi árs og í framhaldinu er fyrirhugað að fara í sérstakt markaðsátak. Skipulag svæðis við Langasand ásamt Guðlaugu fer í hugmyndasamkeppni sem Félag Landslagsarkitekta mun vinna í samstarfi við Akraneskaupstað.

Að sögn Sævars Frey Þráinssonar bæjarstjóra er fjárhagsstaða Akraneskaupstaðar sterk en áhrif Covid-19 og nýrra kjarasamninga hafa haft áhrif á rekstur. Stefnir í að rekstrarafkoma ársins verði ákveðinn varnarsigur en þar skiptir verulegu máli að ábyrg fjármálastjórn hefur verið hjá Akraneskaupstað undanfarin ár. Mikilvægt er að gæta aðhalds í rekstri, vernda grunnþjónustu en sækja fram í atvinnuuppbyggingu, Gangi þær fyrirætlanir eftir má sækja frekar fram og efla grunnþjónustu enn frekar fyrir íbúa. „Sóknarfærin okkar hér á Skaganum eru svo sannarlega til staðar. Við höfum nýtt árið 2020 vel til stefnumörkunar til sóknar í atvinnumálum og nú viljum við sjá árangur af starfi okkar með þróunarfélögin á Breið og Grundartanga. Við viljum hvetja til atvinnutengdra fjárfestinga í Flóahverfi, við Guðlaugu, á Breiðinni, á Langasandsreit og síðast en ekki síst á Grundartanga þar sem mögnuð tækifæri eru til staðar með uppbyggingu gufuaflsvirkjunar, hitaveitu og framleiðslu rafeldsneytis. Við höfum trú á góðum fyrirtækjum á Akranesi til vaxtar nú þegar hillir undir endalok Covid-19 á árinu 2021. Jafnframt viljum við stuðla að uppbyggingu rannsóknar- og nýsköpunarseturs og samvinnurýmis á Breið og verður áfram unnið markvisst að undirbúningi starfsemi í hátækni, heilsutengdri ferðaþjónustu, heilsu- og heilbrigðismálum og hafsækinni starfsemi. Það má því með sanni segja að framundan eru ár mikillar uppbyggingar og sóknar í atvinnumálum.

Á árinu verður menntastefna kláruð með áherslu á eflingu góðra skóla til að bæta námsárangur, líðan, heilbrigðan lífstíl og í takt við tækniþróun til framtíðar. Við ætlum að nýta vel þann meðbyr sem við finnum til bæjarins, til að fjölga íbúum með að gera nýja íbúðarreiti byggingarhæfa og með þeim lágu álagningarstofnum fasteignaskatta hér á Akranesi ætti það að skapa grundvöll til að laða að ný fyrirtæki. Við erum búin að vera í mikilli uppbyggingu íþróttamannvirkja og mun það halda áfram og hefjast framkvæmdir við nýtt Íþróttahús á Jaðarsbökkum ásamt því að ljúka við reiðhöll Dreyra við Æðarodda. Þá er gert ráð fyrir uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlaða einstaklinga, nýjum leikskóla og endurbótum á húsnæði Fjöliðjunnar ásamt uppbyggingu og endurbótum gatna. Nú er það okkar allra að nýta möguleikana og sækja fram í okkar framúrskarandi fjölskyldubæ.“


Fylgigögn:


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00