Fara í efni  

Ályktun bæjarstjórnar Akraness varðandi málefni Orkuveitu Reykjavíkur

Á lokuðum fundi bæjarstjórnar Akraness þann 25. september 2018 var eftirfarandi ályktun samþykkt: 

Bæjarstjórn Akraness harmar þá stöðu sem upp er komin í starfsmannamálum Orkuveitu Reykjavíkur og leggur áherslu á að nýhafin rannsókn á vinnustaðamenningu innan fyrirtækisins verði til lykta leidd með fagmannlegum hætti og úrbætur gerðar.

Í eigendastefnu fyrirtækisins er lögð áhersla á að OR komi fram af heilindum og trausti og ræki samfélagslega ábyrgð í starfsemi sinni. Eigendur vilja að litið verði til fyrirtækisins sem trausts samstarfsaðila sem eftirsóknarvert sé að starfa fyrir og með.

Bæjarstjórn Akraness telur ljóst að þessi ímynd hefur beðið hnekki og endurvekja þarf traust og trúverðugleika fyrirtækisins. Ekkert fyrirtæki er sterkara en sá mannauður sem þar hefur byggst upp.  Standa þarf vörð um allt hið góða í starfseminni og bæta úr því sem miður virðist hafa farið. Óæskileg hegðun og framkoma í garð starfsmanna og þeirra í milli verður ekki liðin.

Það er von bæjarstjórnar Akraness að starfsmenn og stjórnendur OR leggi rannsókninni lið með það að markmiði að bæta vinnustaðamenningu fyrirtækisins. 

Bæjarstjórn Akraness styður ákvörðun stjórnar um að samþykkja ósk Bjarna Bjarnasonar forstjóra um tímabundið leyfi meðan nauðsynleg rannsókn fer fram og styður jafnframt tímabundna ráðningu Helgu Jónsdóttur sem forstjóra.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00