Ályktun bæjarstjórnar Akraness í tilefni þess að Hvalfjarðargöngum verður skilað til ríkisins og gjaldtöku hætt
Á 1279. fundi bæjarstjórnar Akraness þann 25. september 2018 var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Bæjarstjórn Akraness fagnar þeim merkisáfanga sem verður í lok þessa mánaðar, þegar Spölur skilar Hvalfjarðargöngum fullfjármögnuðum til ríkisins tuttugu árum eftir að göngin voru opnuð til umferðar þann 11. júlí 1998.
Hvalfjarðargöng eru einstök framkvæmd á íslenskan mælikvarða og í raun er saga Hvalfjarðarganganna merkisatburður í samgöngusögu íslensku þjóðarinnar og nefna má örfá atriði í því sambandi:
- Fyrsta og eina fjárfesting Íslendinga í samgöngumannvirki undir hafsbotninum við landið.
- Fyrstu neðansjávargöng veraldar í ungu gosbergi.
- Fyrstu neðansjávargöngin á Íslandi.
- Fyrsta framkvæmdin á Íslandi sem samið var um á grundvelli alútboðs og verktakinn bar alla ábyrgð á fjármögnun verksins á framkvæmdatíma og tæknilega ábyrgð á framkvæmd verksins.
- Fyrsta einkaframkvæmd í íslensku vegakerfi.
- Fyrsta fjárfesting íslenskra lífeyrissjóða í einkaframkvæmd.
- Fyrsta alþjóðlega fjárfesting sinnar tegundar í samgöngumálum á Norðurlöndum.
Mannvirkið hefur verið gríðarleg samgöngubót fyrir alla landsmenn en fyrir Skagamenn hefur tilkoma þeirra gjörbreytt forsendum fyrir þróun búsetu á Akranesi.
Öryggi vegfarenda í Hvalfjarðargöngum hefur frá fyrsta degi verið haft í forgrunni í rekstri Spalar til heilla fyrir vegfarendur og vill bæjarstjórn Akraness skora á ríkið að hvika hvergi í öryggismálum við yfirtöku ganganna.
Bæjarstjórn færir forsvarsmönnum Spalar bestu þakkir fyrir ómetanlegt framlag þeirra til samgöngusögu þjóðarinnar sem og þakkir til allra þeirra stórhuga sem komu að undirbúningi og framkvæmd verkefnisins og hafa staðið með því í gegnum þykkt og þunnt.
Jafnframt færir bæjarstjórn Akraness starfsfólki Spalar bestu þakkir fyrir þeirra framlag og óskar þeim velfarnaðar í nýjum verkefnum.
Bæjarstjórn Akraness brýnir ríkið til að huga að því að með sömu þróun umferðar verða Hvalfjarðargöng komin að mörkum leyfilegs umferðarmagns innan fárra missera og því þarf að huga að undirbúningi nýrra Hvalfjarðarganga án tafar.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember