Fara í efni  

Álagningu fasteignagjalda árið 2026 er lokið

Álagningu fasteignagjalda á Akranesi fyrir árið 2026 er nú lokið. Greiðsluseðlar vegna fyrsta gjalddaga hafa verið gefnir út. Gjalddagar fasteignagjalda sem eru umfram kr. 30.000 fyrir árið 2026 eru 15. hvers mánaðar frá janúar til og með október. Gjalddagi fasteignagjalda sem eru undir kr. 30.000 er 15. apríl. Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.

Álagning fasteignaskatts er kæranleg til yfirfasteignamatsnefndar og skal kæra borin fram innan þriggja mánaða frá álagningu. Álagning á gjald vegna meðhöndlunar úrgangs er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá álagningu.

Hér má sjá nánari upplýsingar um álagningu fasteignagjalda.

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu