Fara í efni  

Akraneskaupstaður semur við Gísla Stefán Jónsson ehf. um grasslátt 2015- 2017

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri og Gísli Stefán Jónsson eigandi Gísli Stefán Jónsson ehf. undirrituðu verksamning þann 5. maí 2015 um grasslátt á opnum svæðum Akraness.  Samningurinn gildir til september 2017. Akraneskaupstaður bauð verkið út í apríl síðastliðnum og voru tilboð opnuð 10. apríl síðastliðinn.  Alls tóku þrjú fyrirtæki þátt í útboðinu og var Gísli Stefán Jónsson ehf. með lægsta tilboðið. 

Fyrirtækið mun sjá um slátt meðal annars á tjaldsvæðinu í Kalmansvík, á Garðatúni, Leynisflöt og meðfram helstu umferðarsvæðum. Upplýsingar um grasslátt á opnum svæðum mun verða aðgengilegar á vef Akraneskaupstaðar þar sem kemur fram hvaða svæði Gísli Stefán Jónsson ehf. mun annast og hvaða svæði Vinnuskóli Akraness mun annast. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00