Fara í efni  

Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í Suðurgötu 108

Suðurgata 108. Mynd fengin hjá Fasteignamiðlun Vesturlands.
Suðurgata 108. Mynd fengin hjá Fasteignamiðlun Vesturlands.

Akraneskaupstaður auglýsir til sölu fasteign við Suðurgötu 108. Um er að ræða eign sem saman stendur af tveimur íbúðum samtals 237,2 m2 að stærð ásamt sameign í kjallara samtals 106 m2 og er eignin á þremur hæðum. Húsið er staðsteypt og var byggt árið 1948. Staðsetning eignarinnar er við nýja íbúðabyggð þar sem Sementsverksmiðjan stóð áður og mun byggðin byggjast upp á næstu árum.

Tilboð í eignina eru háð eftirfarandi skilyrðum:

  1. Lágmarksfjárhæð kaupverðs skal vera 40,0 m.kr.
  2. Lágmarksfjárhæð fyrstu greiðslu skal vera 15% af tilgreindu kaupverði tilboðsgjafa sbr. 1. tölul.
  3. Hámarkstími til að greiða kaupverð að fullu er til 1. maí 2021.
  4. Ef tilboð eru að sömu fjárhæð sbr. 1. tölul. ræður greiðslutími sbr. 3. tölul. úrslitum um val á tilboði þannig að það tilboð sem hefur stystan greiðslutíma telst hagstæðast að fullnægðum öðrum skilyrðum.
  5. Þinglýsa þarf kvöðum á húsnæðið en efnislegt innihald kvaðanna liggur fyrir sem fylgiskjal með söluyfirliti.
  6. Kaupsamningur öðlast endanlegt gildi við samþykki bæjarstjórnar.

Tilboðsfrestur er til kl. 16:00 þriðjudaginn 3. nóvember 2020 og skal tilboðum skilað á netfangið akranes@akranes.is. Nánari upplýsingar um eignina veitir Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs í síma 433 1000 eða á netfangið sigurdur.pall.hardarson@akranes.is


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00