Fara í efni  

Lokið - Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í rekstur og umsjón Bíóhallarinnar 2020-2023

Akraneskaupstaður auglýsir eftir áhugasömum aðila til að sjá um rekstur og umsjón Bíóhallarinnar á Akranesi. Rekstur Bíóhallarinnar skal vera í samræmi við gildandi menningarstefnu Akraneskaupstaðar hverju sinni og þannig bjóða upp á umgjörð og stuðning við menningu í bæjarfélaginu í þeim tilgangi að sköpun og upplifun menningar og lista blómstri.

Bíóhöllin var stofnuð árið 1942 og leggur Akraneskaupstaður áherslu á að starfsemi í húsinu samræmist menningarsögu hússins. Bíóhöllin samanstendur af eftirfarandi:

  • Húsnæði, alls 753,27 m²
    • Salur ásamt leiksviði 415,45 m² (209 hefðbundin bíósæti og 24 lúxus bíósæti).
    • Undir sviði 73,56 m² (búningsherbergi og snyrtingar).
    • Anddyri 215,28 m² (aðalinngangur, miðasöluherbergi, snyrtingar, veitingasala og geymsla).
    • Sýningarherbergi og skrifstofa 48,98 m².

Rekstraraðili tekur við húsnæði í núverandi ástandi með öllum þeim búnaði sem snýr að daglegum rekstri og er í eigu Akraneskaupstaðar.

Með tilboði skal fylgja greinargerð þar sem lýst er fyrirhugaðri nýtingu á Bíóhöllinni í því skyni að standa fyrir öflugu menningarlífi í húsinu. Eftirfarandi skal koma fram í greinargerð og verða umsóknir metnar á grundvelli eftirfarandi þátta:

  • Fyrirhuguð menningarstarfsemi og framtíðarsýn fyrir Bíóhöllina á tímabilinu 2020-2023.
  • Reynsla umsækjanda af menningarstarfsemi, viðburðahaldi og rekstri fyrirtækis.
  • Viðskiptamódel/Rekstraráætlun.
  • Markaðsáætlun.

Útboðsgögn verða afhent áhugasömum frá og með miðvikudeginum 28. ágúst 2019. Senda skal óskir um útboðsgögn á netfangið akranes@akranes.is

Tilboðum skal skilað í afgreiðslu bæjarskrifstofu Akraness, Stillholti 16-18, 1. hæð, eigi síðar en þriðjudaginn 17. september 2019 kl. 12:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00