Fara í efni  

Akraneskaupstaður fylgir eftir forgangslista neyðarstigs almannavarna

Almannavarnir hafa biðlað til sveitarfélaga að framfylgja forgangslista neyðarstigs almannavarna þegar kemur að skipulagningu starfs í grunn- og leikskólum og frístund. Er hér um að ræða aðila sem sinna samfélaglega mikilvægri þjónustu svo sem í heilbrigðisgeiranum og viðbragðsgeiranum. Þetta þýðir að framangreindir aðilar fá forgang fyrir börnin sín gegn samþykki stjórnanda stofnunarinnar. Stjórnendur starfsmanna á forgangslista munu fá nánari leiðbeiningar sendar til sín sem og einnig stjórnendur stofnanna sem um ræðir. 

Með þessu vill Akraneskaupstaður stuðla að ekki halli á nauðsynlega þjónustu á þessum fordæmalausum tímum. Akraneskaupstaður álítur svo að það sé samfélagsskylda sveitarfélagsins að passa vel upp á þessar starfsstéttir sem mest mæðir á um þessar mundir.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00