Fara í efni  

Akraneskaupstaður ætlar að verða Barnvænt sveitarfélag

Ásmundur Einar, Sævar Freyr & Birna.
Ásmundur Einar, Sævar Freyr & Birna.

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, og Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness, undirrituðu í dag samstarfssamning um verkefnið Barnvæn sveitarfélög. Með undirskriftinni bætist Akraneskaupstaður í ört stækkandi hóp sveitarfélaga sem hefja nú vinnu við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í stjórnsýslu sína með stuðningi félagsmálaráðuneytisins og UNICEF á Íslandi. 

„Bæjarstjórn Akraness fékk áskorun frá bæjarstjórnarfundi unga fólksins í nóvember um að taka þátt í verkefninu Barnvæn sveitarfélög. Það er því mjög ánægjulegt að bæjarstjórn Akraness hafi nú samþykkt að taka þátt í verkefnin UNICEF og félagsmálaráðuneytisins. Verkefnið kemur á réttum tímapunkti því unnið er að gerð menntastefnu hjá Akraneskaupstað og því tilvalið að vinna þessi verkefni samhliða, með réttindi barna og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi.“ Segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri.

Þátttaka Akraneskaupstaðar í Barnvænum sveitarfélögum er liður í að byggja upp breiðfylkingu sveitarfélaga á Íslandi sem láta sér mannréttindi barna varða, með Barnasáttmálann að leiðarljósi og auknu samstarfi milli ríkis og sveitarfélaga.

„Það er afar gleðilegt að sjá Akraneskaupstað setja málefni barna og fjölskyldna í svo skýran forgang. Það er ómetanlegt að upplifa hversu mikill áhugi er meðal sveitarfélaga á Íslandi að ganga til samstarfs við að innleiða þetta mikilvæga verkefni. Eftirspurn eftir stuðningi við innleiðingu Barnasáttmálans hefur verið mikil og vil ég gera allt sem í mínu valdi stendur til að svara þeirri eftirspurn.“ Segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra:

Markmiðið er að öll sveitarfélög verði Barnvæn sveitarfélög. Akureyri hóf vinnu við að verða Barnvænt sveitarfélag árið 2016, fyrst sveitarfélaga á Íslandi. Í kjölfarið fylgdu Kópavogur (2018), Hafnarfjörður (2019), Borgarbyggð (2020) og nú Akraneskaupstaður.  „Við hjá UNICEF á Íslandi erum ákaflega stolt af því að Akraneskaupstaður bætist í hóp metnaðarfullra sveitarfélaga um allt land sem vinna með okkur að þessu verðuga verkefni. Með undirrituninni í dag skuldbinda fulltrúar bæjarins sig til að vinna að því að forsendur Barnasáttmálans gangi sem rauður þráður í gegnum alla þjónustu sveitarfélagsins. Það er frábært.“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi:

Áhugi á þátttöku í verkefninu hefur verið mikill og biðlistar myndast þar sem UNICEF hefur hingað til ekki getað annað eftirspurn áhugasamra sveitarfélaga. Þann 18. nóvember 2019, í tilefni af 30 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna gengu félags- og barnamálaráðherra og UNICEF á Íslandi til samstarfs við framkvæmd verkefnisins undir formerkjum Barnvæns Íslands. Markmið samstarfsins er að tryggja aðgengi allra sveitarfélaga að stuðningi við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á næstu tíu árum. Á næstu tveimur árum er stefnt að því að 18 ný sveitarfélög bætist í hópinn. Félagsmálaráðuneytið og UNICEF á Íslandi sendu öllum sveitarfélögum landsins fyrir stuttu formlegt erindi með boði um þátttöku og hafa viðtökur verið vonum framar.

Hugmyndafræði Barnvænna sveitarfélaga byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities, en það hefur verið innleitt í hundruðum sveitarfélaga um allan heim. Barnvæn sveitarfélög vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna og UNICEF á Íslandi styður sveitarfélögin í innleiðingu sinni á Barnasáttmálanum.

Nánari upplýsingar um Barnvæn sveitarfélög eru aðgengilegar á vefsíðunni www.barnvaensveitarfelog.is og geta áhugasamir einstaklingar, kjörnir fulltrúar og starfsfólk sveitarfélaga nálgast þar allar nauðsynlegar upplýsingar um innleiðingu Barnasáttmálans.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00