Fara í efni  

Lýsing á breytingu að aðal- og nýju deiliskipulagi - Hausthúsatorg

Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt lýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á aðalskipulagi Akraness 2005-2017 fyrir gerð deiliskipulags fyrir Hausthúsatorg norðan Akranesvegar sbr. 30. gr. og 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögurnar verða kynntar og auglýstar samtímis.

Fyrirhuguð breyting felst í að skilgreindur verður nýr landnotkunarreitur fyrir verslun og þjónustu, þ.e. eldsneytisafgreiðslustöð með veitingasölu, bílaþjónustu og upplýsingasvæði.

Hér er hægt að nálgast lýsinguna á heimasíðu Akraneskaupstaðar og í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18.

Ábendingar og sjónarmið eiga að vera skrifleg og berast fyrir 7. nóvember 2020 í þjónustuver Akraneskaupstaðar Stillholti 16-18 eða á netfangið skipulag@akranes.is 

Sviðstjóri skipulags og umhverfissviðs


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00