Fara í efni  

Skráning í frístund skólaárið 2022-2023

Á Akranesi eru starfandi þrjú frístundaheimili fyrir börn í 1.- 4. bekk.

  • Brekkusel 1.- 2. bekkur í Brekkubæjarskóla
  • Grundasel 1.- 2. bekkur í Grundaskóla
  • Krakkadalur 3. - 4. bekkur úr báðum grunnskólunum

Frístundaheimilin bjóða upp á faglegt tómstundastarf þar sem börnin fá að njóta sín í frjálsum leik og skipulögðu starfi. Frístundastarfið er fjölbreytt og skemmtilegt og því ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Frístundaheimilin eru opin frá því að skóla lýkur á daginn til kl. 16:15.

Mikilvægt er að skrá barnið þó að endanlegur dvalartími liggi ekki fyrir til að hægt verði að tryggja barninu pláss. Umsóknarfrestur er til og með 7. júní 2022.

Sótt er um hér í gegnum Völu kerfið - athugið að velja tímabilið 2022-2023

Upplýsingar um gjaldskrá frístundar er hér.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00