Fara í efni  

Viltu hafa áhrif á þróun Akraness?

Boðað er til kynningarfundar vegna breytingar á deiliskipulagi Akratorgs vegna Suðurgötu 57, gamla Landsbankahússins. Fundurinn verður haldinn kl. 17 mánudaginn 27. apríl, að Dalbraut 4.

Á fundinum verður farið yfir drög að breytingum á deiliskipulagi og starfsemi húsnæðisins þar sem áformað er að starfrækja hótel á efri hæðum og veitingastað á jarðhæð, ásamt veislusal á 4. hæð. Tekið skal fram að meðfylgjandi mynd af húsinu er einungis hugmynd að því hvernig húsið gæti litið út eftir breytingar og fylgir með til gamans. 

Að lokinni kynningu gefst fundargestum kostur á að kynna sér málið nánar, spyrja spurninga og koma á framfæri ábendingum.

Öll eru velkomin.

Viðburðurinn á Facebook


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu