Fara í efni  

Viljayfirlýsing um stækkun Garðavallar

Forsvarsmenn Golfklúbbsins Leynis, bæjarfulltrúar Akraneskaupstaðar og starfandi bæjarstjóri undirri…
Forsvarsmenn Golfklúbbsins Leynis, bæjarfulltrúar Akraneskaupstaðar og starfandi bæjarstjóri undirrituðu viljayfirlýsinguna í gær.

Í gær var undirrituð viljayfirlýsing milli Akraneskaupstaðar og Golfklúbbsins Leynis um að vinna að undirbúningi og mótun tillagna um framtíðarstækkun Garðavallar.

Markmiðið er að tryggja að Garðavöllur þróist áfram sem öflugt íþrótta- og útivistarsvæði þar sem tekið verður mið af þörfum golfíþróttarinnar, almennrar útivistar, náttúru, aðgengis og samfélagslegs ávinnings. 

Með yfirlýsingunni er lagður grunnur að vandaðri framtíðarsýn fyrir svæðið til hagsbóta fyrir iðkendur, íbúa Akraness og gesti bæjarins. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu