Fara í efni  

Tjaldsvæðið á Írskum dögum - spurt og svarað

Bæjarhátíðin Írskir dagar fer fram á Akranesi í næstu viku og mun ná hámarki helgina 3.-5. júlí. Reikna má með fjölmörgum gestum í bæinn og að margir þeirra muni nýta sér aðstöðuna á tjaldsvæðinu í Kalmansvík.

Á svæðinu verður 20 ára aldurstakmark yfir helgina og þar verður gæsla allan sólarhringinn. Hreinlætisaðstaða verður einnig opin allan sólarhringinn og hægt er að fá afnot af þvottavél og þurrkara gegn vægu gjaldi.

Hér fyrir neðan má finna spurningar og svör við ýmsum spurningum varðandi fyrirkomulagið á tjaldsvæðinu um helgina.

Verið velkomin á Skagann og góða skemmtun á Írskum dögum. 💚🤍🧡

Skoða dagskrá Írskra daga

Er hægt að panta fyrirfram?

Nei, ekki verður hægt að panta fyrirfram á tjaldsvæðinu um helgina. 

Verður sérstakt fjölskyldusvæði?

Tjaldsvæðinu verður ekki skipt upp með neinum hætti, en þar verður 20 ára aldurstakmark og vel mönnuð gæsla allan sólarhringinn um helgina.

Hvað kostar?

Á Írskum dögum er verðskráin sem hér segir:

Fullorðnir: 4.500 krónur.
Eldri borgarar og öryrkjar: 4.000 krónur.
14 ára og yngri: Ókeypis.

Þess má geta að það verður eingöngu hægt að greiða með korti.

Hvar er tjaldsvæðið?

Tjaldsvæðið er staðsett í Kalmansvík, á hægri hönd fljótlega eftir að komið er inn í bæinn. Það er hægt að finna með því að velja "tjaldsvæði" í flokknum "þjónusta og afþreying" hér í Kortasjá. 

Gildir útilegukortið á Írskum dögum?

Nei, ekki er hægt að nota útilegukortið á tjaldsvæðinu á Írskum dögum, en það er eina undantekningin á þeirri reglu.

Nánari upplýsingar

Hægt er að finna nánari upplýsingar um tjaldsvæðið inni á tjalda.is. 

Sjá meira

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu