Fara í efni  

Takk Sinfó!

Sinfóníuhljómsveit Íslands sótti Akranes heim á föstudag og spilaði á tvennum tónleikum. Óhætt er að segja að afar vel hafi tekist til en um tveggja ára undirbúningur og ófá handtök lágu að baki þessari stóru stund.
 
Tónleikarnir voru haldnir í nýju íþróttahúsi bæjarbúa á Jaðarsbökkum, en þar með hefur húsið verið vígt sem tónleikastaður. Gaman er að segja frá því að Sinfó heimsótti Akranes fyrst fyrir nákvæmlega 50 árum og þá til að vígja nýtt íþróttahús við Vesturgötu. 
 
Tæplega 700 gestir voru mættir á kvöldtónleikana þar sem um 200 kórsöngvarar og fimm einsöngvarar létu ljós sitt skína. Þvílík hljómsveit, þvílíkir söngvarar og þvílíkir áheyrendur!
 
Sinfóníuhljómsveitinni færum við bestu þakkir fyrir að hafa valið að sækja Akranes heim. Einnig öllum þeim söngvurum sem æfðu sleitulaust í langan tíma til að útkoman yrði sem best, kórstjórnendum og þeim sem lögðu hönd á plóg við undirbúninginn.
 
Jón Gautur tók meðfylgjandi myndir á kvöldtónleikunum.
 
 
 
 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu