Fara í efni  

Sturlaugur Haraldsson ráðinn bæjarstjóri

Sturlaugur ásamt bæjarstjórn Akraneskaupstaðar og Steinari Adolfssyni sem verður starfandi bæjarstjó…
Sturlaugur ásamt bæjarstjórn Akraneskaupstaðar og Steinari Adolfssyni sem verður starfandi bæjarstjóri til 19. ágúst.

Sturlaugur Haraldsson hefur verið ráðinn bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Tillaga þess efnis var samþykkt á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar nú síðdegis. Sturlaugur hefur formlega störf þann 19. ágúst næstkomandi.

Sturlaugur hefur starfað við stjórnun sjávarútvegsfyrirtækja hérlendis og erlendis, nú síðast sem framkvæmdastjóri Akranes Coastline ehf. Hann er með BS gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri og MBA gráðu frá Manchester University.
Sturlaugur er fæddur og uppalinn á Akranesi, en hefur að mestu búið í Bretlandi síðustu tvo áratugi. Hann lék á árum áður með knattspyrnuliði ÍA, fagnaði fjölmörgum Íslands- og bikarmeistaratitlum með liðinu og er í hópi leikjahæstu manna í sögu félagsins. Sturlaugur er kvæntur Þórunni Önnu Baldursdóttur skurðhjúkrunarfræðingi og saman eiga þau fimm börn.

„Það kom nokkuð óvænt upp þegar bæjarstjórn bauð mér starf bæjarstjóra. Eftir góða umhugsun ákvað ég að stökkva til og þiggja boðið,“ segir Sturlaugur. „Mér þykir gríðarlega vænt um bæinn minn og fólkið sem hér býr. Þetta er skemmtilegt tækifæri til að hafa áhrif á umhverfi mitt og ég vona sannarlega að ég geti gert eitthvað gagn. Ég sé mikil framtíðartækifæri í þessu frábæra bæjarfélagi og eftir hreinskiptið samtal við kjörna fulltrúa finn ég að við erum með sameiginlega sýn á hvernig best verður að koma hlutunum áfram.“
Sturlaugur segist ákveðinn í að verða bæjarstjóri allra Skagamanna. „Þar skiptir ekki máli hvort fólk sé í meirihluta eða minnihluta. Hjá bænum starfar öflugt lið og ef við spilum vel saman þá munum við ná góðum árangri. Ég hlakka mjög til þess að taka til starfa,“ segir Sturlaugur.

Í tilkynningu frá bæjarstjórn segir að það sé henni mikil ánægja að tilkynna um ráðningu Sturlaugs í starf bæjarstjóra. “Við teljum að hann búi yfir þeirri reynslu, þekkingu og leiðtogahæfni sem þarf til að leiða áfram mikilvæg verkefni sveitarfélagsins á komandi árum. Framundan eru spennandi tímar. Bæjarstjórn er einhuga um mikilvægi þess að styrkja þjónustu við íbúa, efla rekstur sveitarfélagsins og nýta þau fjölmörgu tækifæri sem hér eru til staðar. Við hlökkum mikið til samstarfsins.”

Sem fyrr segir hefur Sturlaugur formlega störf þann 19. ágúst, en Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs verður starfandi bæjarstjóri fram að því.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu