Stóri plokkdagurinn á sunnudag
Stóri plokkdagurinn verður haldinn með pompi og prakt um allt land á sunnudag, þann 26. apríl. Þann dag eru íbúar hvattir til að sameinast um að plokka rusl úr umhverfi sínu, úr bæjarlandinu, Garðalundi og öðrum opnum svæðum.
Markmið Stóra plokkdagsins er einfalt en mikilvægt: að fegra umhverfið, draga úr rusli í náttúrunni og vekja athygli á því að litlar aðgerðir margra geta skilað miklum árangri.
Dagurinn er jafnframt samfélagsverkefni sem sameinar fólk á öllum aldri í jákvæðu og aðgengilegu umhverfisátaki.
Akraneskaupstaður mun setja lokaða gáma á allar þrjár grenndarstöðvar bæjarins, þ.e. við Bíóhöll, aftan við Krónuna og við Byggðasafnið. Gámarnir verða á þeim stöðum í þrjá daga, frá föstudeginum 24. apríl og til mánudagsins 27. apríl.
Sem fyrr segir er um landsátak að ræða, en það er Rótarýhreyfingin á Íslandi sem skipuleggur daginn með aðstoð og atfylgi góðra bakhjarla. Markmið Rótarýhreyfingarinnar er að dagurinn sé ætlaður öllum sem vilja skipuleggja hreinsunarátak á þeim degi, eða eftir atvikum öðrum degi á svipuðum tíma.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015