Fara í efni  

Spara þarf kalt vatn - Jaðarsbakkalaug og Guðlaugu lokað tímabundið

Loðnuvertíðin er fram undan á Akranesi með tilheyrandi aukningu á vatnsnotkun. Í ár kemur vertíðin hins vegar inn í óvenju langa þurrkatíð, sem gerir vatnsbúskap bæjarins viðkvæmari en ella. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum, en nýliðinn janúarmánuður var sá þurrasti síðan 1926 eða í heila öld. 

Til að tryggja nægt vatn á meðan vertíð og þurrkar standa yfir biðla Veitur til íbúa og fyrirtækja að huga sérstaklega að notkun kalda vatnsins næstu vikur. Um er að ræða tímabundið ástand.

Akraneskaupstaður hefur þegar gripið til nauðsynlegra ráðstafana til að takmarka vatnsnotkun. Jaðarsbakkalaug verður lokað tímabundið frá og með kl. 18 í dag. Hið sama gildir um Guðlaugu. Bjarnalaug notar frekar lítið vatn og því er hægt að halda henni opinni meðan ástandið varir. Íþróttahúsið verður opið og hið sama gildir um World Class.

Opnunartími í Bjarnalaug næstu daga verður sem hér segir:

Föstudagur: 18:00-22:00
Laugardagur: 9:00-19:00
Sunnudagur: 9:00-19:00
Mánudagur: 6:30-22:00

Hvernig má spara kalda vatnið?
Veitur hafa sent íbúum tölvupóst þar sem má meðal annars finna góð ráð til að spara vatnið. Drykkjarvatnið má drekka að vild, nota í matseld og láta það renna nóg til að fá það kalt. Önnur ráð eru árangursrík ef öll hjálpast að:

- Látum ekki vatnið renna að óþörfu
- Sleppa því að láta renna í kalda og heita potta
- Láta stutta sturtu duga
- Nota fötu, en ekki slöngu og kúst, í glugga- og bílaþvottinn
- Setja tappa í vaskinn við uppvask
- Nota orku- og vatnssparandi þvottakerfi á þvottavélar og uppþvottavélar, fylla þær áður en þvegið er

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Veitna með því að smella hér.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu