Fara í efni  

Sleppistæði en ekki bílastæði

Athygli er vakin á því að “rennurnar” þrjár við nýja íþróttahúsið á Jaðarsbökkum eru ekki bílastæði, heldur svokölluð sleppistæði.

Þar er velkomið að stöðva bíla og til dæmis hinkra eftir farþegum um borð, en bannað er að leggja þeim þar.

Nú er búið að setja upp viðeigandi merkingar við sleppistæðin þrjú, en eitt þessara þriggja sleppistæða er “Grundaskólamegin” við götuna.

Enn ber eitthvað á því að íbúar leggi í stæðin, en mikilvægt er að því verði hætt svo þau þjóni sínum tilgangi.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu