Fara í efni  

Skemmtiferðaskip leggst að bryggju á Akranesi í fyrramálið

Franska skemmtiferðaskipið Le Bellot mun sigla inn til Akraness í fyrramálið, á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Áætlað er að skipið muni leggjast að bryggju klukkan 8.00.

Gaman er að segja frá því að Le Bellot er fyrsta skemmtiferðaskipið sem heimsækir Akranes í nokkur ár og jafnframt fyrsta skemmtiferðaskipið sem lagðist að bryggju á Akranesi fyrir tæpum áratug.

Um 250 farþegar eru um borð og stefnt er að því að taka vel á móti þeim.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu