Sinfó stefnir á að fylla íþróttahúsið
Sinfóníuhljómsveit Íslands mun heimsækja Akranes þann 15. maí næstkomandi, daginn fyrir kosningar, og halda tvenna tónleika í nýju íþróttahúsi bæjarins. Verkefnið er afar umfangsmikið enda hefur undirbúningur staðið yfir í tvö ár. Fyrri tónleikarnir eru ætlaðir yngri kynslóðinni og byggja á syrpum og lögum úr Vísnabókinni, en á þeim seinni munu kórar og einsöngvarar af Vesturlandi eiga sviðið ásamt Sinfóníuhljómsveitinni. Aðgangur verður ókeypis og markmiðið er að um þúsund gestir nái að njóta tónleikanna tveggja.
Verkefnið er unnið í samstarfi Akraneskaupstaðar, Sinfóníuhljómsveitarinnar og kóranna, en þau Hilmar Örn Agnarsson organisti við Akraneskirkju og Vera Líndal verkefnastjóri menningar- og safnamála hjá Akraneskaupstað áttu frumkvæði að því og Hólmfríður Friðjónsdóttir kórstjóri hefur nú bæst í hóp þeirra sem halda utan um tónleikana ásamt Sinfó.
Skessuhorn birti góða grein um tónleikana í morgun en þar segja Hilmar og Hólmfríður að þau hlakki til að stefna svo mörgum söngvurum saman þennan dag enda sé það mikið tækifæri fyrir kórfólk af Vesturlandi að fá að syngja með Sinfóníuhljómsveitinni.
Um tónsprotann heldur Hjörtur Páll Eggertsson en einsöngvarar eru þau Benedikt Kristjánsson, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Björg Þórhallsdóttir, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir og Kristín Sveinsdóttir. Kórarnir sem koma fram með hljómsveitinni eru Freyjukórinn, Kvennasveitin Skaði, Karlakórinn Söngbræður, Karlakórinn Heiðbjört, Karlakórinn Svanir, Kvennakórinn Ymur, Gleðigjafar, Hljómur og Kór Akraneskirkju.

Sem fyrr segir byggja barnatónleikarnir, sem ætlaðir eru leik- og grunnskólabörnum, á hinni klassísku Vísnabók, en í henni má meðal annars finna lögin Siggi var úti, Fyrr var oft í koti kátt og Hann Tumi fer á fætur. Það eru landsþekktir leikarar og söngvarar sem koma þar fram með hljómsveitinni auk barnakóra af Akranesi sem stíga á stokk undir stjórn Lilju Margrétar Riedel.
Ljóst er að Akurnesinga og annarra gesta bíður mikil tónlistarveisla í íþróttahúsinu þennan dag og því full ástæða til að hvetja fólk til að taka hann frá í dagatalinu. Hér fyrir neðan er hlekkur á viðburðinn á Facebook og áhugasamir mega gjarnan merkja þar við mætingu.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember





