Fara í efni  

SEINKUN Á SORPHIRÐU

Skipulögð tæming söfnunaríláta allra úrgangsflokka hjá heimilum sem Terra átti að ljúka 3. janúar hefur því miður ekki gengið eftir.

Tæmingu á söfnunarílátum fyrir lífrænan og blandaðan úrgang er núna lokið. Terra vinnur við tæmingu á söfnunarílátum fyrir pappa og plast úrgang og að því ljúki þriðjudaginn 14. janúar.

Íbúum er bent á að hægt er að losa flokkaðan plast og pappaúrgang í gáma á grenndarstöðvum. Terra mun tæma gámana daglega næstu 4 dagana svo það gangi vel fyrir sig.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Dagatal Terru yfir tæmingu íláta eftir úrgangsflokkum hjá heimilum á árinu.  Sjá hér


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu