Fara í efni  

Rannsóknir á mögulegu vatnstökusvæði

Veitur hafa undirritað samkomulag um rannsóknir á vatnstökumöguleikum í landi Bekansstaða, Hvítaness og Arkarlækjar í Hvalfjarðarsveit. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Veitna. 

Í samstarfi við landeigendur verður rannsakað hvort nýtanlegt magn af góðu neysluvatni sé til staðar. Rannsóknasamkomulagið er til fimm ára. Lagt er upp með að byrja á því að bora ofan lindasvæðanna til þess að kanna hvort unnt sé að vinna vatn með borholum. Með borun er mögulega hægt að nýta betur vatn sem annars rynni fram sem grunnvatn.

Vonir standa til að frá svæðunum mætti vinna neysluvatn til að nýta í vaxandi samfélag á Akranesi og þess hluta Hvalfjarðarsveitar sem tengdur er veitunni.

„Akranes er ört vaxandi samfélag og mikilvægt að tryggja heilnæmt vatn til íbúa og fyrirtækja til frambúðar. Við vonumst til að finna vatn sem um munar fyrir vatnsveituna og að með því megi draga enn frekar úr notkun yfirborðsvatns frá Berjadalsá sem í dag er um 20 prósent af heildarnotkun,“ segir Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona vatnsmiðla hjá Veitum. „Vatnið frá Berjadalsá getur verið viðkvæmt fyrir umhverfisáhrifum og æskilegra er að nýta grunnvatn. Samkomulagið gefur okkur tækifæri til að rannsaka lindir sem vitað er um í Akrafjalli og hafa þótt nærtækasti kosturinn til að bæta viðbótarvatni inn á veituna.“


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu