Fara í efni  

Ragnheiður og Rögnvaldur eru Skagamenn ársins 2025

Hjónin Ragnheiður og Rögnvaldur, Skagamenn ársins 2025, ásamt Valgarði Lyngdal Jónssyni forseta bæja…
Hjónin Ragnheiður og Rögnvaldur, Skagamenn ársins 2025, ásamt Valgarði Lyngdal Jónssyni forseta bæjarstjórnar Akraness. Hjónin fengu málverk eftir Bjarna Þór Bjarnason að gjöf við þetta tilefni. Mynd: Skagafréttir/Sigurður Elvar Þórólfsson

Hjónin Ragnheiður Hjálmarsdóttir og Rögnvaldur Einarsson voru á laugardag útnefnd Skagamenn ársins 2025 á Þorrablóti Skagamanna. Bæði sitja þau í stjórn FEBAN – Félags eldri borgara á Akranesi og nágrenni, þar sem Ragnheiður er einnig formaður. Þau hjónin hafa staðið sig einstaklega vel í störfum sínum fyrir félagið sem hefur vaxið og dafnað undir þeirra stjórn.

Það var Valgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar Akraness sem svipti hulunni af því á laugardag hver hefði hlotið útnefninguna að þessu sinni, en mikil spenna ríkir jafnan fyrir því. Hefð er fyrir því að það sé gert í bundnu máli.

Ein eru hjón á Skipaskaga,
skapa þar gleði alla daga,
vinsæl mjög í vinafjöld.
Barnalánið best þau eiga,
blíðu og gæfu njóta mega.
Þau við heiðrum hér í kvöld.

Hann er ávallt greiðagóður,
gæðamaður, vís og fróður,
Hún af þrótti og hlýju rík.
Sem leiðtogi af lífsins náðum
leiðir hún starf af sönnum dáðum.
Þau hjónin eru engum lík.

Í margra lífi þau mörkuðu sporin,
mættu á haustin og kvöddu á vorin,
alveg einstakir kennarar.
Þeirra starfa nú fá notið,
nytsemd hafa og gæfu hlotið,
Akraness eldri borgarar.

(Valgarður Lyngdal Jónsson)

Við óskum hjónunum hjartanlega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu