Fara í efni  

Opnun á glæsilegri sýningu í Bátahúsinu

Í dag eru bæjarbúar og aðrir góðir gestir boðnir velkomnir á sýningaropnun á sýningunni “Til fiskiveiða fóru” í Bátahúsinu á Byggðasafninu í Görðum, en þar er skyggnst inn í útgerðarsögu Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Það er því vel við hæfi að sýningin sé opnuð almenningi á sjálfan sjómannadaginn.

Sýningin er hin glæsilegasta og undirbúningur hefur staðið yfir í nokkurn tíma. Bátahúsið sjálft er einstakur safngripur, en það var reist utan um fjóra súðbyrta báta sem mynda hjarta sýningarinnar. Slík bátasmíði var árið 2021 færð á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf, sem undirstrikar mikilvægi þessarar hefðar.

Á myndinni má sjá Guðríði Sigurjónsdóttur fyrrverandi formann menningar- og safnanefndar og Söru Hjördísi Blöndal sýningarstjóra opna dyr sýningarinnar fyrir boðsgesti á fimmtudag. Bátahúsið er óeinangrað timburhús með náttúrulegri loftræstingu, skipt í þrjú bátahús og bryggjuhús sem tengjast með opnum rýmum. Gestir ganga þannig inn í lifandi umhverfi sem endurskapar aðstæður fortíðar fremur en að skoða hefðbundna sýningu.

Sýningin er opin frá kl. 11-17 í dag og við hvetjum fólk eindregið til að líta við um leið og við óskum þeim að sýningunni standa innilega til hamingju með þessa metnaðarfullu og fallegu sýningu.

Viðburðurinn á Facebook


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu