Fara í efni  

Olíumengun við Olís á Esjubraut

Olís vinnur þessa dagana að því að skipta um tanka við starfsstöð fyrirtækisins á Esjubraut á Akranesi. Framkvæmdin hefur verið unnin í samráði við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands. Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðiseftirlitinu var í fyrstu talið að svæðið væri hreint enda enga olíumengun að finna undir tönkunum, sem eru upprunalegir. Nýju tankarnir eru stærri og því þurfti að grafa dýpra. Þá kom í ljós talsverð olíumengun og er búið að fjarlægja marga farma af menguðum jarðvegi. Engin saga er þekkt um olíuslys eða olíumengun á svæðinu og því er uppruni olíunnar óþekktur.

Ekki er talið að íbúum stafi hætta af, en nokkur olíulykt er í næsta nágrenni af þessum sökum. Í framhaldi er fyrirhugað að taka sýni af mengaða jarðveginum til að fá betri upplýsingar um gerð mengunarinnar.

Nú er í skoðun hvort einhver saga sé um olíumengun á staðnum og heilbrigðiseftirlitið biður þá sem mögulega hafa upplýsingar um málið að senda póst á netfangið eftirlit@hev.is.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu