Móttaka fyrir pappír og plast færð til Gámu
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur tekið ákvörðun um að móttaka fyrir pappír og plast verði framvegis í móttökustöð Gámu í Höfðaseli. Þeir grenndargámar sem nú eru staðsettir við Bíóhöllina, Byggðasafnið og Dalbraut verða fjarlægðir. Ekki verður ráðist í stækkun og endurbætur á grenndarstöðinni við Dalbraut.
„Þetta er niðurstaða okkar eftir samtal við íbúa, meðal annars þá sem búa í grennd við móttökustöðina við Dalbraut,“ segir Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri. „Gámar fyrir málm og gler verða áfram staðsettir innan bæjarins, en ákvörðun um staðsetningu þeirra verður tekin á næstu vikum. Það eru úrgangsflokkar sem okkur ber lögum samkvæmt að safna og fólk er ekki með tunnur fyrir við heimili sín.“
Sturlaugur segir að Fjöliðjan muni líkt og áður taka á móti textíl, en fatagámar þeirra eru staðsettir við Smiðjuvelli 9.
Opnunartími hjá Gámu var nýlega lengdur. Hann er alla virka daga frá 10-18 og að auki til kl. 20 á fimmtudögum. Á laugardögum er opið frá 9-15.
Rétt er að benda á að ekkert gjald er tekið fyrir losun á pappír/pappa og plasti hjá Gámu.
Nú fer málið að nýju inn til skipulags- og umhverfisráðs til frekari úrvinnslu.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015